Í grunnskólanum í Borgarnesi eru nú alþjóðlegar sumarbúðir fyrir 11 ára börn víða að úr heiminum en þáttakendur eru frá 16 þjóðlöndum. Það eru alþjóðlegu samtökin CISV – Building Global Friendship sem standa fyrir búðunum en íslandsdeild þeirra heldur sumarbúðir hér þriðja hvert ár. Samtökin voru stofnuð í kjölfar seinni heimstyrjaldarinnar en stofnandinn, bandaríski sálfræðingurinn Doris T. Allen, vildi reyna að koma í veg fyrir frekari styrjaldir með því að börn fengju að kynnast og leika sér saman í mánuð þrátt fyrir að koma frá ólíkum löndum, trúarbrögðum eða menningarumhverfi. Á föstudaginn var haldinn svokallaður opinn dagur þar sem hver hópur kom fram og sýndi atriði sprottið úr eigin þjóðmenningu og gestir fengu að bragða á góðgæti frá löndunum. Allt starf samtakanna er unnið af sjálfboðaliðum og eru þau óháð trúarbrögðum og stjórnmálum.
Nánari upplýsingar má fá á www.cisv.is og www.cisv.org.