Samstaða með Tíbetum á 51 ára afmæli “Tibetan Uprising”

Grasrótin, Myndir, Svipufréttir. 9. 3. 2010.
Samstaða með Tíbetum á 51 ára afmæli “Tibetan Uprising”

Miðvikudaginn 10. mars er 51 ár liðið síðan Dalai Lama flúði Tíbet – 2 ár eru liðin frá blóðugum átökum í Lhasa sem brutust út vegna mótmæla munka og almennings gegn því alræði sem þjóðin býr við.

Vinir Tíbets taka þátt í alþjóðaaðgerð til að sýna tíbesku þjóðinni stuðning í baráttu þeirra fyrir mannréttindum og trúfrelsi. Safnast verður saman fyrir utan kínverska sendiráðið að Víðimel 29, miðvikudaginn 10. mars kl: 17:30. Tsewang Namgyal flytur erindi um ástandið í Tíbet. Birgitta Jónsdóttir fer yfir í stuttu máli hvað við getum gert til að treysta böndin á milli þjóðanna.

Í Tíbet getur það varðað margra ára fangelsi að eiga fána Tíbets. Í Tíbet búa nú fleiri Kínverjar en Tíbetar. Í Tíbet er tungumálið að glatast. Í Tíbet hafa verið herlög í meira en tvö ár og harkan gagnvart íbúum landsins virðist engan enda taka. Fyrir tveimur árum síðan lýsti Dalai Lama ástandinu í Tíbet á þann veg að þar væri verið að fremja menningarlegt þjóðarmorð.

Fjölmennum og sýnum tíbesku þjóðinni samstöðu í verki.

Eitt svar við “Samstaða með Tíbetum á 51 ára afmæli “Tibetan Uprising””

Athugasemdir