Nú reynir Obama að koma almannatryggingarlögum á í Bandaríkjunum. Þetta frumvarp nýtur stuðnings góðs meirihluta þjóðarinnar, meirihluta þingmanna en minnihluti þingmanna nær að koma í veg fyrir að málið komist í gegnum þingið og er þeir nú þegar búnir að knýja fram miklar breytingar á frumvarpinu. Áfram reynir Obama að koma lögum í gegn, sem eru orðin að málamiðlun við þrýstihópa innan Demókrataflokksins. Skrifræðið virðist enn einu sinni ætla að hafa betur en vilji almennings.
Þetta þekkist vel hér heima. Það var stór mismunur á milli þess sem kallað hefur verið kapitalískar löggjafir og grundvallarsjónarmiða kapitalismans. Frelsi einstaklingsins til gjörða og viðskipta, á meðan það brýtur ekki á rétti annarra, er grunnur kapitalískrar hugsjóna. Í áranna rás hafa stjórnvöld látið undan skrifræðinu innan eigin flokka, þar sem hagsmunapot er dulbúið sem stefnumál kapitalisma. Eftir að Sósialisminn náði yfirhöndinni, þá er þetta sama hagsmunapot dulbúið sem stefnumál sósíalista.
Kapitalisk framkvæmd hefur svo oft miðað að því að verja rétt stórfyrirtækja og þrýstihópapólitík, þar sem hagsmunagæsla minnihluta verður á kostnað hagsmuna stærri þjóðfélagshópa.
Ef hafðar eru í huga helstu kennisetningar andstæðra afla í stjórnmálum, sú vinstri um jöfnuð og mannréttindi og sú hægri um frelsi sem skerðir ekki rétt annarra, hvaðan koma þá þessar hugmyndir sem eru stærstu aðgerðir stjórnvalda í „þágu almennings“ eftir hrun?
- Bankarnir fengu sjálfræði til þess að ákveða afskriftir af lánunum sem þeir fengu afhent frá ríkinu þegar þeir voru stofnaðir aftur.
- Fulltrúar fyrirtækja og fulltrúar verkalýðsfélaga fara með stjórnun lífeyrissjóða almennra landsmanna.
- Nýjar lagabreytingar sem tryggja fjölda kvenna í stjórn og festa í sessi að áfram sé í skjóli leyndar hægt að fá leppi til að sitja í stjórn fyrir þá sem raunverulega stjórna og eiga fyrirtæki.
Þessar úrlausnir eru ekki stefnumál flokkana, heldur hins íslenska skrifræðis, þar sem hin raunverulegu völd í þjóðfélaginu koma í ljós. Hverjir vilja tryggja fjármagnseigendum fulla stjórn á lánagreiðendum, ekki hreyfa við völdum fyrirtækja yfir stærstu sameign landsmanna, lífeyrissjóðunum, og kalla gegnsæi að þeir sem eiga fyrirtæki geti fengið að vita hver á það á móti þeim, en þeir sem versla við fyrirtæki mega ekki fá sömu upplýsingar?
Ennþá eru stjórnvöld brennimerkt því sem kalla má skrifræðisstjórnun og ennþá eru grunnsjónarmið kapitalískra, sem sósilískra, hugsjóna svikin, sem og rétturinn til að stjórna sínum málum án þess að það gangi á rétt annarra og jafnrétti allra. Allar aðgerðir sem miðuðu að því að fá milliliði við stjórnun annarra á eignum og skuldum almennings, allar aðgerðir sem fjarlægja ekki þessa milliliði, allar aðgerðir sem gera mönnum kleift að fela eignarhluti sína fyrir viðskiptavinum vinna gegn raunverulegum kapitalisma og raunverulegum sosíalisma.
Það eru sjálfsögð mannréttindi að stjórna sjálfur hver fer með eigur þínar í lífeyrissjóðum, að stjórnvöld komi eins fram við skuldara og fjármagnseigendur og að fá að vita hver á fyrirtækið sem þú átt viðskipti við. Um leið og stóru flokkarnir hætta að svíkja sjálfa sig og standa með sínum hugsjónum þá erum við í góðum málum. Því bæði kapitalisminn og sósialisminn eru betri og mannvænni hugsjónir en það skrifræðisveldi sem hér hefur verið byggt upp.



[...] Lestu meira á Svipunni [...]