Ólafur Ragnar að gugna á lýðræðinu?

Myndir, Svipufréttir. 10. 3. 2010.
Ólafur Ragnar að gugna á lýðræðinu?

Í samtölum við erlenda blaðamenn sagði Ólafur Ragnar að mikill meirihluti Íslendinga styddi sanngjarnari Icesave samninga.  Því yrði ekki þörf á að vísa næsta samningi aftur til þjóðarinnar.  Samt er yfir 60% þjóðarinnar þeirrar skoðunar að ekki eigi að greiða neitt af Icesave umfram það sem fæst upp í skuldir með eignum þrotabúsins.

Það virðist orðið nauðsynlegt að mæta á Bessastaði, með undirskriftir 60.ooo einstaklinga sem vilja alls ekki borga fyrir Icesave samninganna og ætlast til þess að ríkisstjórn Íslands fari að vinna út frá þeim forsendum.

Það tók Alþingi eina klukkustund í vikunni að koma því út úr þinginu, án þátttöku stjórnarflokkana að ræða hvernig hægt væri að standa að enduruppbyggingu Íslendinga án aðkomu AGS. Það kostar því væntanlega 60.000 undirskriftir að koma málinu á upphafsreit. Því á meðan ekkert er gert ætla ríkisstjórnarflokkarnir ekki að tala á Alþingi ef það felur í sér að láta í ljós álit sitt á öðrum leiðum en AGS leiðinni.

Það er sennilega orðið tímabært að fara að safna aftur undirskriftum, fara á Bessastaði og koma Alþingismönnum í vinnuna sína. Hún felst í því að fylgja vilja þjóðarinnar.  Vilja sem er sá sami og vilji kjósenda í alþjóðasamfélaginu.  Þar vilja menn ekki heldur að almenningur sitji uppi með að greiða fyrir fall banka sem eru rændir innanfrá.

Athugasemdir