Ríkislögreglustjóri hefur pantað smíði á færanlegri lögreglugirðingu. Girðingin, sem er í smíðum hjá járnsmiðjunni Prófílstál við Stórhöfða í Reykjavík, er aðallega hugsuð til nota á höfuðborgarsvæðinu þegar nauðsynlegt þykir að halda fólki frá.
Lögreglan hefur hingað til notast við gulan borða til að girða af svæði en erfitt getur verið að nota hann í þröngum götum.
Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni í Reykjavík, sagði að þessar girðingar væru til verndar lögreglumönnum ef það þarf að girða af svæði. Þetta sé eitt af því sam hafi vantað og hafi hingað til verið leigt. Aðspurður sagði hann þetta ekki vera til marks um það að lögreglan teldi að harðari mótmæli væru í uppsiglingu.
Jón F. Bjartmarz, yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra, tók undir orð Geirs Jóns og sagði enn fremur að girðingarnar yrðu fyrst og fremst notaðar á höfuðborgarsvæðinu, til dæmis til að girða af brunavettvang og önnur svæði þar sem halda þarf fólki frá. Girðingarnar gætu einnig verið notaðar út á landi, til að mynda á útihátíðum og öðrum viðburðum þar sem lögreglan þarf að vera með gæslu.


