Attac á Íslandi hittir fulltrúa norsku ríkisstjórnarinnar á opnum fundi í Ósló

Grasrótin, Myndir, Svipufréttir. 21. 1. 2010.
Attac á Íslandi hittir fulltrúa norsku ríkisstjórnarinnar á opnum fundi í Ósló

Þann 4. febrúar n.k. munu þrír fulltrúar frá Attac-samtökunum á Íslandi, þeir Einar Már Guðmundsson rithöfundur, Bjarni Guðbjörnsson sagnfræðingur og Gunnar Skúli Ármannsson læknir hitta fulltrúa norsku ríkisstjórnarinnar á opnum fundi í Ósló. Jafnframt munu sitja fundinn fulltrúar norsku Attac-samtakanna, en þau hafa skipulagt fundinn ásamt með íslensku deildinni.

Yfirskrift fundarins er „Á AGS að fara frá Íslandi?“ Attac-samtökin á Noregi og Íslandi eru að undirbúa sameiginlegar tillögur um hvernig hægt sé að standa að því að endurreisa efnahag Íslands án aðkomu AGS. Mikill hljómgrunnur er fyrir því í Noregi að aðstoða Ísland þannig að Íslendingar geti hafnað afarkostum AGS, Breta, Hollendinga og ESB varðandi Icesave-málið, og án þess að Ísland þurfi að fara að þvingandi skilyrðum AGS fyrir aðstoð. Fundurinn er ætlaður til að ræða möguleika á því og til að kynna tillögur Attac-samtakanna um endurreisn Íslands án aðkomu AGS.

2 svör við “Attac á Íslandi hittir fulltrúa norsku ríkisstjórnarinnar á opnum fundi í Ósló”

  1. Frábært framtak hjá Attac-samtökunum á Íslandi, alveg eins og Indefense bjargaði því að IceSLAVE yrðu að (Ó)lögum hérlendis. Við eigum fjöldan allan af færum einstaklingum, vandamálið er bara hversu fáir af þeim lenda inn á alþingi…lol…lol…:).

    kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)

Athugasemdir