Í kjölfar yfirlýsingar forseta Íslands að vísa svo kölluðum Icesave lögum til þjóðarinnar hafa þingmenn Hreyfingarinnar sent frá sér eftirfarandi tilkynningu:
Þingmenn Hreyfingarinnar fagna ákvörðun forseta Íslands um að vísa nýjum Icesave lögum í dóm þjóðarinnar. Með ákvörðun sinni hefur forsetinn greitt götu lýðræðisumbóta á Íslandi svo um munar og um leið sett ákveðið fordæmi um hvernig þjóðin sjálf geti kallað eftir atkvæðagreiðslu um tiltekin mál.
Nú ríður á að Alþingi samþykki sem fyrst frumvarp til laga um þjóðaratkvæðagreiðslur og ber svo við að tvö frumvörp liggja fyrir í þinginu í þeim efnum. Annars vegar frumvarp forsætisráðherra sem gerir ráð fyrir því að meirihluti þingsins geti skotið málum í dóm þjóðarinnar með þingsályktunartillögu. Hins vegar frumvarp Hreyfingarinnar þar sem vilji tiltekins minnihluta þingmanna nægir og að sama skapi er gert ráð fyrir að 10% kjósenda geti með undirskrift sinni krafist þjóðaratkvæðagreiðslu. Gerlegt væri að sameina frumvörpin í eitt og afgreiða með skjótum hætti sé vilji fyrir því.
Auk forsetans vilja Þingmenn Hreyfingarinnar þakka þeim fjölmörgu sem hafa lagt sitt af mörkum undanfarið í þágu lýðræðis. Fyrst ber að nefna óþreytandi borgara sem hafa staðið vaktina á Austurvelli og víðar svo mánuðum skiptir. Í kjölfar fundar sem haldinn var í sumar í Iðnó af borgarafundateyminu komst undirskriftasöfnun um þjóðaratkvæðagreiðslu um fyrri Icesave lög á góðan skrið og á endanum skrifuðu um 11 þúsund manns undir þá áskorun á kjosa.is. Að lokum ber að þakka InDefence hópnum sem, ásamt ofangreindum, á heiður skilinn.
5. janúar 2010
Birgitta Jónsdóttir,
Margrét Tryggvadóttir
og Þór Saari



[...] Lestu meira á Svipunni [...]
Ef það er eitthvað sem stendur uppúr öðru undanfarið er það sú staðreynd að tiltölulega lítil sjálfboðaliðasamtök, InDefence, ná að draga fram sannleikann í málinu og einnig vera í forsvari fyrir stærstu undirskriftasöfnun sem fram hefur farið.
Þetta er stór dagur fyrir lýðræðið.
[...] að hann synjaði icesave. Þetta var ekki alveg að gera sig. Sama er með hreyfinguna. Í yfirlýsingu á svipan.is, var notuð fyrirsögnin: “Lýðræði er samræða um val“ Þegar ég [...]
Lýðræðið 1- 0 Floksræðið
Styð tillögu Hreyfingarinnar 100% Hún er partur af þeirri lýðræðisframför sem okkur er nauðsynleg. Athugið það að Hreyfingar tillagan gengur lengra en stjórnarinnar og er lýðræðislegri f.h. fólksins. http://www.althingi.is/altext/138/s/0005.html