Fréttasafn fyrir ‘January, 2010’

Upplýsingavefur um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar opnaður

Upplýsingavefur um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar opnaður

Upplýsingavefur dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar 6. mars næstkomandi hefur verið opnaður. Á vefnum, sem hefur slóðinawww.kosning.is, eins og við fyrri kosningar, er að finna fróðleik og hagnýtar upplýsingar er lúta að framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Upplýsingarnar nýtast almennum kjósendum og þeim sem vinna að kosningunum, t.d. varðandi kjörskrá, utankjörfundaratkvæðagreiðslu og atkvæðagreiðslu á kjördegi. Fjallað er um [...]

Handboltalandsliðið fær 10 milljónir frá ríkisstjórninni

Handboltalandsliðið fær 10 milljónir frá ríkisstjórninni

Í heillaskeyti frá Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra heitir hún áframhaldandi stuðningi ríkisstjórnarinnar við íslenska handboltalandsliðið. Óskar forsætisráðherrann liðinu til hamingju með bronsverðlaunin á evrópumótinu og segir ríkisstjórnina leggja fram 10 milljónir króna í veganesti fyrir heimsmeistaramótið í Svíþjóð á næsta ári.
Íslenska landsliðið tryggði sér þriðja sætið á evrópumótinu í dag með sannfærandi sigri á Pólverjum.

Flugstoðir og Keflavíkurflugvöllur sameinuð í nýtt opinbert hlutafélag

Flugstoðir og Keflavíkurflugvöllur sameinuð í nýtt opinbert hlutafélag

Stofnað var í dag opinbert hlutafélag um sameinaðan rekstur opinberu hlutafélaganna Flugstoða og Keflavíkurflugvallar. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Kristjáni L. Möller, var heimilað með lögum nr. 153/2009 sem samþykkt voru á Alþingi 21. desember 2009 að gangast fyrir stofnun félagsins.

Tilgangur hins nýja félags er að reka alla flugvelli landsins og sjá um uppbyggingu þeirra ásamt tilheyrandi flugstöðvum [...]

Uppreisn fíflanna er hafin, FLokkarnir fá rauða spjaldið!

Uppreisn fíflanna er hafin, FLokkarnir fá rauða spjaldið!

Í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík nýverið, mættu 39% félagsmanna. Hjá Samfylkingunni var mætingin enn verri eða 34%. Það er alveg ljóst að almenningur hefur snúið baki við flokkakerfinu og hefur ekki áhuga á að taka þátt í því.  Frambjóðendur í fyrsta sætið eru almennt að fá um það bil þrjú atkvæði af hverjum fjórum. Það [...]

Ekki nauðsynlegt að slá á tortryggni í samfélaginu

Ekki nauðsynlegt að slá á tortryggni í samfélaginu

Í viðtali við Ásmund Stefánsson bankastjóra í hádegisfréttum Bylgjunnar sl. föstudag, kom fram að Landsbankinn ætlar ekki að auglýsa á heimasíðu sinni íbúðir, sem bankinn hefur leyst til sín frá einstaklingum.
Allar stærri eignir bankans verða auglýstar á heimasíðu Reginn, sem er dótturfélag Landsbankans.
Aðspurður um það hvort ekki væri heppilegt að auglýsa íbúðir til að slá [...]

Ísbjörn eða negri í Þistilfirði

Ísbjörn eða negri í Þistilfirði

Það eru misjafnar fréttirnar og orðavalið fylgir tíðarandanum. Svipan fékk þessa frétt frá árinu 1977 senda en hún birtist í dagblaðinu Dagur á sínum tíma.
Nú er sagt að þegar ísbjörn kemur á land á íslandi sé vinnuferlið:
1. Skjóta hann. 2. Flá hann og 3. Stoppa hann upp.

Tíu ömurlegustu hótel í Evrópu

Tíu ömurlegustu hótel í Evrópu

Af tíu ömurlegustu hótelum í Evrópu eru átta þeirra í Englandi. Lýsingar gesta á sumum þeirra eru til dæmis: Helvíti, drulluhola, ógeðslegt, drullugt, skítugt, mylga, osfrv. Merkilegt er að meirihluti þessara hótela er í London.
Þennan lista má skoða hér en einnig lista yfir bestu hótelin.

Forseti Íslands er í liði með Íslendingum

Forseti Íslands er í liði með Íslendingum

Það hefur oft komið upp spurningin: “Erum við ekki í sama liði?” og er þar átt við íslenska stjórnmálamenn og íslenska þjóð. Eins og sjá má á þessu myndskeiði virðist íslenski forsetinn í það minnsta vera í sama liði og þjóðin.
Í viðtalinu lætur forsetinn enska stjórnmálamenn heyra það óþvegið að þeir séu ruddar og hafi [...]

FJÖLSKYLDUDAGSKRÁ UM FURÐUVERUR

FJÖLSKYLDUDAGSKRÁ UM FURÐUVERUR

Hafnarhús – Laugardag 30. janúar kl. 14

Á laugardaginn klukkan 14 er boðið upp á dagskrá fyrir alla fjölskylduna í tengslum við sýninguna Ljóslitlífun þar sem ellefu, ungir málarar sýna kraftmikil, litrík og oft ævintýraleg málverk og myndir.
Leitað verður að furðuverum, dýrum og plöntum sem birtast á ólíklegustu stöðum á sýningunni og kannað hvernig [...]

Fulltrúar Hreyfingarinnar sækja aðalfund RÚV

Fulltrúar Hreyfingarinnar sækja aðalfund RÚV

Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, og Sigurður Hr. Sigurðsson, sérstakur áheyrnarfulltrúi, sóttu aðalfund RÚV sem hófst kl. 14.00. í dag. Margrét og Sigurður gerðu niðurskurð á innlendri dagskrárgerð að umtalsefni sínu á fundinum og báru upp eftirfarandi spurningar:
Samkvæmt frétt RÚV kemur fram að ætlunin sé að skera niður fréttatengt efni, hætta að kaupa íslenskar kvikmyndir og [...]