Fréttasafn fyrir ‘December, 2009’

Gleðilegt ár

Gleðilegt ár

Svipan óskar landsmönnum öllum
gleðilegs árs,
farsældar og friðar á nýju ári.

Forseti Íslands tekur á móti áskorun Indefence

Forseti Íslands tekur á móti áskorun Indefence

Forseti Íslands lýsti því yfir á ríkisráðsfundi í morgun þegar fjármálaráðherra gerði tillögu um staðfestingu svonefndra Icesavelaga, að hann myndi ekki taka afstöðu til tillögunnar á þessum fundi þar eð aðeins um hálfur sólarhringur væri liðinn frá því Alþingi samþykkti málið og gefin hefðu verið fyrirheit um að forseti tæki við undirskriftum sem safnað hefur [...]

Mótmæli á Bessastöðum á gamlársdag – myndasería

Mótmæli á Bessastöðum á gamlársdag – myndasería

Ríkisráðsfundi lauk á tólfta tímanum í dag í skugga mótmæla gegn Icesave. Hátt í 70 manns voru mættir við Bessastaði þegar fundurinn byrjaði kl. 10 í morgun til að hvetja forseta Íslands til að synja Icesave lögunum en þau voru samþykkt á Alþingi í gærkvöldi.
Mótmælin fóru friðsamlega fram, nokkrir kveiktu á handblysum og köll voru [...]

Forseti Íslands neitar að taka við undirskriftum 45000 Íslendinga

Forseti Íslands neitar að taka við undirskriftum 45000 Íslendinga

Forseti Íslands neitar að taka við undirskriftum Indefence samtakana en rúmlega 45000 manns hafa skrifað undir áskorun til forsetans um að synja nýsamþykktu lagafrumvarpi um ríkisábyrgð vegna skulda Landsbankns, Icesave samninga.
Samkvæmt heimildum Svipunnar boðaði skrifstofa forseta Íslands forsvarsmenn Indefence á sinn fund síðast liðinn mánudag en þá höfuð rétt um 30000 skrifað undir áskorunina. Indefence [...]

Rúmlega 45 þúsund manns skora á forsetann

Rúmlega 45 þúsund manns skora á forsetann

Nú þegar InDefence hópurinn á að mæta hjá forseta vorum eftir hálftíma þá hafa 45.331 skrifað undir áskorun til forsetans að synja undirskrft laganna og senda þau þar með í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Aldrei hafa jafn margir skrifað undir áskorun til forsetans. Sennilega hefur það aldrei gerst að jafn stór hluti nokkurrar þjóðar í heiminum hafi skrifað undir [...]

Á sjöunda þúsund í viðbót skrifa undir áskorun til forseta Íslands

Á sjöunda þúsund í viðbót skrifa undir áskorun til forseta Íslands

Eftir að atkvæðagreiðslu um Icesave frumvarpið lauk hafa á sjöunda þúsund skrifað undir áskorun Indefence til forseta Íslands. Þannig hafa á annað þúsund bæst við á hverri klukkustund frá því að Alþingi samþykkti með 33 atkvæðum gegn 30 að taka á sig gríðarlegar ábyrgðir fyrir Landsbankann.
Áskorun Indefence er svohljóðandi:

Ég skora á forseta Íslands, herra Ólaf [...]

Icesave frumvarpið samþykkt

Icesave frumvarpið samþykkt

Alþingi Íslendinga samþykkti rétt í þessu að veita Tryggingasjóði innstæðueigenda og fjárfesta ríkisábyrgð vegna skulda sem Landsbankinn stofnaði til á meðan Björgjólfur Guðmundsson og viðskiptafélagar áttu bankann. Íslenska ríkið tekur þannig ábyrgð á hundruðum milljarða króna kröfum breskra og hollenskra innstæðueigenda.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra mun því að öllum líkindum bera lögin undir forseta Íslands á [...]

Blysför á Austurvelli

Blysför á Austurvelli

Um það bil 200 manns mættu á Austurvöll í dag til þess að mótmæla Icesave samkomulagi ríkisstjórnarinnar.
Indefence hvatti fólk til þess að mæta og mótmæla á friðsaman hátt með Bengalblysum og sýna Alþingi að Íslendingar vilji ekki taka á sig þær ábyrgðir sem fylgja samningunum.
Samtökin hafa safnað tæplega 36 þúsund undirskriftum á áskorun til forseta [...]

Embættismaður neitar að koma fyrir þingnefnd

Embættismaður neitar að koma fyrir þingnefnd

Sá fáheyrði atburður gerðist í morgun að Svavar Gestsson, aðalsamningamaður Íslands í Icesave viðræðunum, neitar að koma á fund fjárlaganefndar. Guðbjartur Hannesson formaður fjárlaganefndar bað Svavar um að mæta að ósk minnihluta nefndarinnar en Svavar hafi neitað því.
Það hefur verið talið ein af skyldum embættismanna að koma fyrir þingnefndir og upplýsa þær um gang mála [...]

Samninganefnd Íslands grátbað um vægð – ný skjöl birt á Wikileaks

Samninganefnd Íslands grátbað um vægð – ný skjöl birt á Wikileaks

Samninganefnd Íslands í Icesave viðræðunum grátbáðu um vægð á fundi með fulltrúum sjö helstu evrópuríkjanna; Þýskalands, Bretlands, Hollands, Austurríki, Finnlands, Svíþjóðar og Danmerkur. Þetta kemur fram í nýbirtum skjölum sem lekið hefur verið á vefsíðunni Wikileaks og má lesa hér fyrir neðan.
Ennfremur kemur fram í skjölunum fulltrúar þessarar ríkja sjái að tækifæri sé fyrir Evrópusambandið til að [...]