Hafin er söfnun til að gera minnisvarða um samþykkt Icesave frumvarpsins. Á minnisvarðann verða greipt í stein nöfn þeirra þingmanna sem samþykkja eða sitja hjá við afgreiðslu frumvarpsins, svo þau varðveitist um alla framtíð þeim sjálfum og afkomendum þeirra til ævarandi skammar.
Hægt er að skrá sig fyrir fjárframlagi á www.iceslave.is. Fenginn verður listamaður fyrir hóflegt [...]

November 30, 2009 | Birtist í
Myndir,
Svipufréttir |
Lesa meira »

Hópur aðgerðarsinna sem tók virkan þátt í Búsáhaldabyltingunni síðast liðinn vetur hefur tekið sig saman og stofnað heimavarnarlið til varnar heimilum landsins.
Heimavarnarliðið ætlar að verja heimili fólks fyrir útburði vegna óréttmætra skuldakrafna, með því að hindra aðgang lögreglu ef þarf.
Í tilkynningu frá Heimavarnarliðinu kemur fram að:
Heimavarnarliðið gengur friðsamlega fram í aðgerðum sínum en áskilur sér [...]

November 30, 2009 | Birtist í
Grasrótin,
Svipufréttir |
Lesa meira »
Félag um Stafrænt Frelsi (FSFÍ) stendur fyrir fundi í Friðarhúsi, Njálsgötu 87, þriðjudaginn 1. desember 2009 kl. 20.30.
Tveir fulltrúar frá WikiLeaks, Daniel Schmitt og Julian Assange, eru staddir hérlendis í tengslum við ráðstefnu FSFÍ, sem haldin verður fyrr um daginn.
Meginefni fundarins verður kynning Daniel og Julian á WikiLeaks og hugmyndunum sem þar liggja að baki. [...]

Samtök fullveldissinna hafa sent frá sér eftirfarandi samþykkt varðandi lög um ríkisábyrgð á lánum til Tryggingasjóðs innstæðueigenda og fjárfesta, Icesave samninga.
Veiting ríkisábyrgða vegna innistæðna á Icesave-reikningum Landsbankans í Bretlandi og Hollandi er brot á reglum um innistæðutryggingar sem í gildi voru á öllu EES þegar Landsbankinn komst í þrot. Krafan um ríkisábyrgðirnar er tilraun Bretastjórnar [...]

Methane er gastegund sem verður til í öllum ruslahaugum og er í dag að mestu látið leka ónotað út í andrúmsloftið. Á íslensku er þetta gas oftast kallað metan eða hauggas. Einfalt er að breyta hvaða bensínvél sem er þannig að hún gangi fyrir metani.
En hversu mikið mál er það að breyta bílnum og hvað [...]

Mörg hundruð manns mættu á Austurvöll á laugardag kl. 15 þar sem Hagsmunasamtök heimilanna ásamt fleirum héldu fund. Ræðumenn fundarins voru varaformaður HH, Ólafur Garðarsson, Lúðvík Lúðvíksson frá samtökunum Nýtt Ísland og Björn Þorri Viktorsson hæstaréttarlögmaður. Auk þess tóku fleiri til máls og var fundargestum meðal annars boðið að tjá sig í stutta stund í [...]

November 29, 2009 | Birtist í
Myndir,
Svipufréttir |
Lesa meira »
Snemma á næsta ári verður stærsta fiskiskip Þjóðverja, hið 141 metra langa, Maartje Theadora, útbúið með 160 fermetra dragsegli.
Útgerðaraðilar skipsins gera ráð fyrir verulegum olíusparnaði, sérstaklega á lengri ferðum og við veiðar. Skipið veiðir mest við strendur Afríku og í suður Kyrrahafi. Svona dragsegl hafa þegar verið sett á nokkur flutningaskip Haren/Ems skipafélagsins og gefið [...]

Forseti Alþingis gerði tilraun í gær, laugardag 28. nóvember, til að halda áfram þingfundi eftir klukkan 20, án þess að um það væri samkomulag milli þingflokka og án þess að tillaga um slíkt hafi verið borin upp og samþykkt af þinginu. Þingmenn stjórnarandstöðunnar telja að með þessu sé gengið gegn ákvæðum þingskapa með freklegum hætti [...]

Stórkostlegur niðurskurður stendur nú til í skólakerfi landsins. Fjárframlög til einstakra skóla verða almennt skorin niður um fimm prósent að meðaltali. Sumir skólar verða hreinlega lagðir niður með niðurskurði. Það á við um flest fjarnám og kvöldskóla. Til dæmis verða fjárframlög til kvöldskóla Fjölbrautaskólans í Breiðholti skorin niður um helming. Er hann þó enginn baggi [...]

November 29, 2009 | Birtist í
Myndir,
Svipufréttir |
Lesa meira »
Nú eru síðustu forvöð til að sýna samstöðu og mæta í Lýðveldisgöngu á laugardaginn næstkomandi kl. 14.
Gengið verður frá Hlemmi og niður á Austurvöll þar sem samstöðufundur verður haldinn á vegum Hagsmunasamtaka Heimilanna klukkan 15:00
Hvetjum fólk til að hafa mér sér fána, slagverk og kröfuspjöld.
sjá: Lýðveldisganga á Facebook
og hér
Heimilin í landinu eru engin afgangsstærð. [...]
