Fréttasafn fyrir ‘October, 2009’

Lausn eða fleyting að feigðarósi?

Lausn eða fleyting að feigðarósi?

Undanfarið ár hafa stjórnvöld gert nokkrar tilraunir til að fullvissa almenning í landinu um að tekið verði á brýnum skuldavanda heimilanna og kynnt „lausnarpakka“ með stórum yfirlýsingum og kynningum.  Þegar betur er að gáð hafa úrræðin almennt valdið vonbrigðum, hvorki verið aðgerðir til að forða frekara fjárhagstjóni heimilanna né til að leiðrétta þann forsendubrest sem [...]

Íslandsdeild Attac samtakanna fundar fimmtudag 29.okt. kl. 20 – í Reykjavíkurakademíunni, 4.hæð í JL-húsinu

Íslandsdeild Attac samtakanna fundar fimmtudag 29.okt. kl. 20 – í Reykjavíkurakademíunni, 4.hæð í JL-húsinu

Í dag klukkan 20 er fundur Íslandsdeildar Attac samtakanna.
Vegna fjármálakreppunnar sem skall á í haust settu Sameinuðu þjóðirnar
á fót sérfræðinganefnd undir forustu Joseph Stiglitz til að grafast
fyrir um orsakir kreppunnar, áhrif hennar um heim allan, og koma með
tillögur að aðgerðum til að koma í veg fyrir að álíka atburðir
endurtaki sig og til að koma á [...]

Þingmenn Hreyfingarinnar funda með grasrótar- og velferðarhópum á Akureyri fim. 29.október í Deiglunni kl. 17.

Þingmenn Hreyfingarinnar funda með grasrótar- og velferðarhópum á Akureyri fim. 29.október í Deiglunni kl. 17.

Þingmenn Hreyfingarinnar funda með fulltrúum grasrótar- og velferðarhópa á Akureyri n.k. fimmtudag (29. október). Fundurinn fer fram í Deiglunni og hefst kl. 17:00.
Þingmenn Hreyfingarinnar langar til að kynna sér starfsemi grasrótarhópa og fleiri sem er annt um velferð samfélagsins á Akureyri. Af þessu tilefni munu eftirtaldir fulltrúar kynna starfsemi eftirtalinna hópa/nefnda/stofnana.
Þeir aðilar sem verða á [...]

Siðrofið í samfélaginu

Siðrofið í samfélaginu

Hafa stjórnmálamenn tapað meðvitundinni fyrir samfélaginu? Fyrir hverja eru þeir að vinna? Sjálfan sig? Flokkinn? Þjóðina?
Þetta eru efnin sem verða tekin til umfjöllunar á næsta borgarafundi á Akureyri sem verður haldinn fimmtudaginn 29. október n.k. Fundurinn fer fram í Deiglunni og hefst kl. 20:00.
Frummælendur:
* Jón Baldvin Hannesson, skólastjóri
* séra Gunnlaugur Garðarsson, prestur við Glerárkirkju
* Grétar [...]

AGS frá Íslandi!

AGS frá Íslandi!

Emilie Ekeberg, formaður Attac Norge og Árni Daníel Júlíusson, Attac á Íslandi skrifa:
Í þessari viku (25.-31. okt.) heldur Norðurlandaráð sinn árlega fund, nú í Stokkhólmi. Norðurlöndin hafa gefið Íslandi lánsloforð undir stjórn AGS. Nú er orðið alveg ljóst að AGS ræður ekki við verkefnið, og aðgerðir sjóðsins gera ekki annað en dýpka kreppuna á Íslandi. [...]

Hagsmunasamtök heimilanna efast um áhrif skjaldborgarlaganna

Hagsmunasamtök heimilanna efast um áhrif skjaldborgarlaganna

Ný sett lög félags- og tryggingamálaráðherra, Árna Páls Árnasonar, um greiðsluaðlögun lána miðast við að staðfesta eignaupptöku fjármálastofnana í heimilum lántakenda. Skjalborgin var sem sagt sett um fjármagnseigendur en ekki heimilin.
Í tilkynningu HH segir:
„Að mati stjórnar HH hefur á engan hátt verið svo mikið sem nálgast kröfur Hagsmunasamtaka heimilanna um leiðréttingu höfuðstóla íbúðalána heimilanna hvað [...]

Gríðarleg erlend skuldsetning Íslands mun leiða til landflótta og lýðfræðilegrar eyðileggingar

Gríðarleg erlend skuldsetning Íslands mun leiða til landflótta og lýðfræðilegrar eyðileggingar

Í viðtali við IMF Survey Magazine segir Mark Flanagan fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að erlend skuldsetning Íslands muni hæst fara í 310% af vergri landsframleiðslu. Segir hann að þetta sé mun hærra en talið var í fyrstu en sé samt viðráðanlegt fyrir Ísland.
Gunnar Tómasson hagfræðingur hefur bent á í bréfi sem hann sendi öllum alþingismönnum að það [...]

Bankarnir fá leyfi til að selja eignir lántakenda

Bankarnir fá leyfi til að selja eignir lántakenda

Samtök fjármálafyrirtækja gerðu með sér samkomulag um verklagsreglur um sértæka skuldaaðlögun 12. október síðastliðinn. Samkomulagið, sem enn er trúnaðarmál, var þannig tilbúið um það bil viku áður en þingmenn fengu að sjá samsvarandi frumvarp um skuldaaðlögun einstaklinga. Í frumvarpinu, sem lagt var fyrir þingið með mjög stuttum fyrirvara og samþykkt síðastliðinn föstudag, þrátt fyrir að [...]

Hvítur söngur Öbbu

Hvítur söngur Öbbu

Abba  –   Aðalbjörg Þórðardóttir opnaði málverkasýningu í Gallerí Fold við Rauðarárstíg síðast liðinn laugardag. Sýninguna nefnir listamaðurinn „Hvítur söngur“ og stendur hún til 8. nóvember.
Aðalbjörg útskrifaðist sem BSc í líffræði frá Háskóla Íslands 1979 og lauk námi í grafískri hönnun frá MHÍ 1988. Að auki var hún um tveggja ára skeið við nám við Konstskolan [...]

Lífeyrissjóðirnir gætu með kaupum á Landsvirkjun komið með mikinn gjaldeyrir inn í hagkerfið

Lífeyrissjóðirnir gætu með kaupum á Landsvirkjun komið með mikinn gjaldeyrir inn í hagkerfið

Ragnar Önundarson stjórnarmaður hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna lagði það til á morgunverðarfundi Viðskiptaráðs að lífeyrissjóðirnir keyptu Landsvirkun. Ragnar bendir á að þannig sé hægt að leysa ákveðinn eigendavanda sem Landsvirkjun stríðir við og losa ríkið undan vaxtagreiðslum af lánum frá lífeyrissjóðunum.
Ragnar tengdi þessa hugmynd við Icesave skuldirnar og benti á að áhyggjur manna að Bretar [...]