Forstjóri Askar Capital, Benedikt Árnason, hefur óskað eftir að félagið verði tekið til slitameðferðar. Forstjórinn segir að sjö milljarðar af eignum félagins sé veðlaus krafa á Avant sem nú sé töpuð vegna þeirrar óvissu sem hefur skapast vegna niðurstöðu Hæstaréttar um ólöglega gengistryggingu lána. Við það verður eiginfjárstaða félagsins neikvæð um þrjá og hálfan milljarð [...]

Í dómum Hæstaréttar í málum nr. 92/2010 og 153/2010 er skýrt kveðið á um að óheimilt sé að tengja lánasamninga í íslensku krónum við dagsgengi erlendra gjaldmiðla. Hagsmunasamtök heimilanna ásamt þorra löglærðra manna telja skýrt kveðið á um í dómunum, að lánasamningar þessir skulu standa óbreyttir að öðru leyti, þar með talin vaxtakjör og lánstími. [...]


Þjóðhátíðardagur Íslands er einnig dagur íslenskrar ferðaþjónustu á heimssýningunni EXPO 2010 í Shanghæ. Af því tilefni var efnt til viðskiptaþings þar sem fjölda fulltrúa kínverskra fjölmiðla og fyrirtækja var boðið að kynningu að hlýða á erindi ferðaþjónustuaðila og eiga fundi með fulltrúum í íslensku viðskiptasendinefndinni. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra opnaði viðskiptaþingið og ræddi meðal annars samskipti ríkjanna og [...]

June 20, 2010 | Birtist í
Viðskipti |
Lesa meira »

Hagstofa Íslands hefur gefið út tölur um fiskafla í maí 2010
Afli á föstu verðiHeildarafli íslenskra skipa í nýliðnum maímánuði, metinn á föstu verði, var 5,5% minni en í maí 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 11,7% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði.
Afli í tonnumAflinn nam [...]


Heildarlaunakostnaður á greidda stund dróst saman um 3,2% frá fyrri ársfjórðungi í atvinnugreininni samgöngum og flutningum og um 2,1% í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Á sama tímabili jókst heildarlaunakostnaður á greidda stund um 0,7% í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu og um 0,1% í iðnaði.
Í áðurnefndum atvinnugreinum jókst heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna frá fyrri ársfjórðungi. Mest var [...]


Hagstofa Íslands hefur gefið út þjóðhagsspá fyrir árin 2010-2015 í ritröðinni Hagtíðindum. Í spánni er gert ráð fyrir að landsframleiðsla dragist saman um 2,9% árið 2010. Hagvöxtur verður hinsvegar jákvæður frá 2011 og út spátímann miðað við að stóriðjuframkvæmdir hefjist af fullum krafti og að geta heimilanna til einkaneyslu verði ekki fyrir frekari skakkaföllum.
16

Atvinnuleysi í þeim löndum sem eru aðilar að Efnahags- og framfarastofnun Evrópu (OECD) var stöðugt í 8,7% í apríl síðast liðnum. Atvinnuleysi í maí var óbreytt í Kanada en lækkaði um 0,2 prósentustig í Bandaríkjunum og fór í 9,7%.
Atvinnuleysisstigið í OECD ríkjunum er nú svipað og það var eftir síðari heimstyrjöldina. Mesta atvinnuleysið í apríl [...]

Alþingi samþykkti rétt í þessu breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki. Lögunum er ætlað að taka á ýmsum ákvæðum núgildandi laga um fjármálafyrirtæki sem talið er að hafi átt sinn þátt í efnahagshruninu sem varð hér á landi haustið 2008 og leiddi í framhaldinu til mikilla efnahagslegra erfiðleika á Íslandi.
Í lögunum eru lagðar til breytingar sem [...]

Eftir kaup Lilju Skaftadóttur á DV og dv.is eru konur meirihlutaeigendur í þremur dagblöðum landsins.
Lilja Skaftadóttir keypti DV og dv.is ásamt Reyni Traustasyni og öðrum ónefndum einstaklingum fyrir 60 milljónir króna á dögunum en fyrir er hún meirihlutaeigandi í vefritinu Smugunni. Lilja Skaftadóttir er sögð vera listaverkasali og búa í Frakklandi en á einnig íbúð [...]

Vöruskipti í febrúar voru hagstæð um tæpa 14 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Útflutningur nam 44,3 milljörðum króna og innflutningur 30,4 milljarði króna. Þetta er 18. mánuðinn í röð sem vöruskiptajöfnuðurinn er hagstæður.
Samkvæmt endanlegu uppgjöri janúarmánaðar voru vöruskipti hagstæð um 6,5 milljarða króna í honum. Miðað við bráðabirgðauppgjöri mánaðarins mátti vænta liðlega 10 milljarða [...]

March 10, 2010 | Birtist í
Myndir,
Viðskipti |
Lesa meira »