‘Pistlar’

Klíkurnar styðja enn við bakið á “sínu fólki”

Klíkurnar styðja enn við bakið á “sínu fólki”

Í frétt frá Samtökum Atvinnulífsins á heimasíðu þeirra má nú lesa grein eftir Vilhjálm Egilsson.  http://www.sa.is/frettir/almennar/nr/4931/
Þarna fer hann stórum um það sem hann kallar “þriðja hrunið” og vill meina að ef ríkisstjórn Geirs Haarde verði dregin fyrir Landsdóm, þá skapi það bótaskyldu. Sem leiði af sér “þriðja hrunið”. Einnig kemst hann svo [...]

Aumingjavæðing Vinnumálastofnunar

Aumingjavæðing Vinnumálastofnunar

Ein umdeildasta stofnun ríkisins, Vinnumálastofnun, hefur verið mikið í sviðsljósinu síðustu tvö ár, aðallega vegna getuleysis við að leysa úr erfiðum aðstæðum fólks og einnig vegna vægast sagt furðulegra ákvarðana.
Það virðist ekki vera tilgangur stofnunarinnar að vernda og halda utan um þann hóp sem hefur misst atvinnu sína og örugga lífsafkomu, heldur virðist það vera [...]

Af klaufaskap biskups

Af klaufaskap biskups

Grein eftir Önnu Kristjánsdóttur.
Gunnar Sigurjónsson prestur tjáði sig um starf biskups í sjónvarpsfréttum í kvöld, taldi orð hans klaufaleg en ekki svo að ástæða væri fyrir hann að segja af sér. Ég er sammála Gunnari um að biskup sé enginn sökudólgur í kynferðisbrotamálum meðal kirkjunnar þjóna. Klaufaskapur er hinsvegar réttlæting fyrir kröfu um afsögn.
Biskup tjáði [...]

Pakistan-í hvoru liðinu ert þú

Pakistan-í hvoru liðinu ert þú

Grein eftir Gunnar Skúli Ármannsson Cand. Med.
Eins og öllum er kunnugt um þá hafa miklar hörmungar gengið yfir Pakistan. Mikil flóð urðu þess valdandi. Um 6 milljónir eru heimilslausir og yfir 20 milljónir hafa orðið fyrir mismiklum skaða. Hjálp berst seint og illa og vetur er skammt undan. Ef ekki tekst að bæta ástandið verulega [...]

Glæpamenn á beit í bönkunum!

Glæpamenn á beit í bönkunum!

Grein frá leshópi Rannsóknarskýrslu Alþingis. Markmið hópsins er að lesa saman skýrsluna, ræða efni hennar saman og á opinberum vettvangi og miðla henni og þeim lærdómi sem draga má af henni til almennings.

Eins og áður hefur komið fram þá eru lærdómar fyrri bankakreppa meðal annars þeir að:

Fólk með vafasama fortíð sækist alltaf til áhrifa í [...]

Lægstvirtir stjórnlagaþingmenn

Lægstvirtir stjórnlagaþingmenn

Lægstvirtir stjórnlagaþingmenn
Eftir Daða Ingólfsson sjá hér
Jæja. Nú er komið að stóru stundinni. Það á að kjósa á stjórnlagaþing það fólk sem er besti samnefnari fyrir þjóðina til að búa til nýja stjórnarskrá lýðveldisins. Fyrst á að finna þverskurð af þjóðinni (eitt þúsund enni), sem eiga að sleppa af sér beislinu og skila undirstöðum nýrrar stjórnarskrár [...]

Ríkiskirkjan verður af 27 milljónum

Ríkiskirkjan verður af 27 milljónum

Alls hafa 3004 skráð sig úr Ríkiskirkjunni, stundum einnig nefnd Þjóðkirkjan, á tímabilinu 1. desember 2009 til loka ágúst 2010. Flestir sem hafa skráð sig úr þjóðkirkjunni kjósa að standa utan trúfélaga eða 2132. Af þeim sem kjósa að fara í annað trúfélag kjósa flestir fríkirkjur eins og Fríkirkjurnar í Reykjavík og Hafnarfirði sem og [...]

Einkabankar búa til lögeyrir landsins

Einkabankar búa til lögeyrir landsins

Eftir Jón Þór Ólafsson, stjórnmálafræðing
Thomas Jeffersson, höfundur sjálfstæðisyfirlýsingar Bandaríkjanna og þriðji forseti þeirra, varaði við því að afhenda einkabönkum valdið til að gefa út gjaldmiðil þjóðarinnar. Varúðarorð hans eiga vel við í dag, en hann sagði: “Ef bandaríska þjóðin leifir einkabönkum nokkurn tíma að stjórna útgáfu þjóðargjaldmiðilsins, fyrst með verðbólgu, síðan með verðhjöðnun, þá munu [...]

Stjórnlagaþing – líka fyrir fjölmiðla

Stjórnlagaþing – líka fyrir fjölmiðla

Pistill eftir Daða Ingólfsson – áður birt á ding.blog.is
Síðastliðinn laugardag var haldið málþing í Skálholti um efnið “Hvernig verður góð stjórnarskrá til?”. Þar var mætt valinkunnugt sómafólk sem ekki hefur verið hægt að berja áhugann á nýrri stjórnarskrá úr ennþá. Haldin voru fróðleg erindi og unnið í hópum þess á milli. Mættust þar lærðir og leikir, [...]

Þjóðaratkvæði um aflamark eða sóknarstýringu

Þjóðaratkvæði um aflamark eða sóknarstýringu

eftir Níels A. Arsælsson
Þar sem löngu er ljóst að hin furðulega LÍÚ nefnd um endurskoðun kvótakerfisins mun engu skila nema tillögum um óbreytt kvótakerfi, þá er víst að kvótakerfið verður að fara í þjóðaratkvæði og það sem fyrst.
Fyrirfram er ljóst hver niðurstaðan verður enda 80-90 % af þjóðinni á móti þessu illræmdasta kvótakerfi veraldar.

Kvótakerfi sem [...]