Stjórnarskrá Íslands 72. gr. – Stjórnvöld á hálum ís
Gunnar Tómasson, hagfræðingur
Ágætu alþingismenn.
Stjórnarskrá Íslands kveður á um friðhelgi eignarréttarins í 72. sem hér segir:
‘Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess lagafyrirmæli og komi fullt verð fyrir.’
Í síðustu viku var greint frá því í fréttum [...]

Vakin er athygli á borgarafundi á vegum Bótar, aðgerðarhóps um bætt samfélag:
Borgarafundur um málefni bótaþega & láglaunaþega
Miðvikudagskvöldið 8. september kl. 20 í Ráðhúsi Reykjavíkur
Frummælendur
Talsmenn öryrkja, aldraðra,atvinnuleitenda, félagsbótaþega & láglaunaþega ásamt fulltrúum hjálparsamtaka
Pallborð
Ráðherrar – ASÍ. – BSRB. – SA. – Velferðarfulltrúar Reykjavíkur og sveitafélaga á landsvísu o.fl.
Á palli
Þingmenn – Vinnumálastofnun – Tryggingasvið Félags- og tryggingamálaráðuneytisins – [...]

Finnbogi Vikar fulltrúi Borgarahreyfingarinnar og Hreyfingarinnar í sáttanefndinni skilaði séráliti þar sem hann segir skipun nefndarinnar hafa verið mistök. Jafnframt segir hann að samningaleiðin sé versta mögulega útkoma sem nefndin getur lagt til og verði sú leið farin sé í raun verið að einkavæða auðlindina og gefa núverandi kvótahöfum.
Hér fyrir neðan er álitið í heild [...]

Fréttatilkynning frá Íbúahreyfingunni í Mosfellsbæ.
Í megin áherslum Íbúahreyfingarinnar fyrir kosningar kemur fram að ráða eigi fólk í nefndir á faglegum forsendum. Í samræmi við það auglýsti Íbúahreyfingin eftir fagfólki í nefndarstörf og óhætt er að segja að viðtökurnar hafi farið fram úr björtustu vonum.
Greinilegt er að nóg er af hæfu fólki sem vill starfa fyrir [...]

BÓT, aðgerðarhópur um bætt samfélag, stendur fyrir borgarafundi í Ráðhúsi Reykjavíkur á miðvikudagskvöldið 8. september kl. 20. Fjalla á um málefni félagsbótaþega sem sveitafélögin eru í forsvari fyrir en yfirskrift fundarins er “Fátækt á Íslandi – lágmarksframfærsla”.
Fulltrúum Vinnumálastofnunar var boðið á fundinn til þess að svara fyrirspurnum úr sal. Í svari frá Gissuri Péturssyni forstjóra [...]

Stærsta skömm ríkisvaldsins
Eftir Jakobínu Ingunni Ólafsdóttur, stjórnsýslufræðing
Eitt áhugaverðasta lesefni samtímans er sennilega fyrir Íslendinga rannsóknarskýrsla Alþingis. Skýrslan er ekki gallalaus en sérstaklega má að henni finna að túlkun og umræðu er ekki gerð nægilega góð skil. Það má að þessu leiti segja að skýrslan sé ekki fullunnin. Þetta væri í góðu lagi ef fjórða valdið [...]

„Til þess að breyta því sem þarf að breyta þurfum við að byrja á grunninum. Það er að skrifa nýja Stjórnarskrá og í þeirri stjórnarskrá þurfum við að skilgreina nýtt stjórnkerfi. Við þurfum að tryggja það að við endum ekki með fólk sem situr á þingi eða inni í ráðuneytum áratugum saman. Það þarf að [...]

Íslendingar eru smátt og smátt að læra að mótmæla í stað þess að láta bjóða sér hvað sem er. Hingað til hafa mótmæli helst beinst að stjórnvöldum, fjármálafyrirtækjum og meintum umhverfisspjöllum. Minna hefur farið fyrir mótmælum gegn einstökum verðhækkunum, t.d. á matvöru eða eldsneyti.
Fræg er sagan frá Þýskalandi þar sem bakaríið hækkaði brauðið og allir [...]

Pistill eftir Daða Ingólfsson – áður birt á ding.blog.is
Ný íslensk stjórnarskrá breytir öllu
Eftirlætis röksemd þeirra sem ekki vilja endurskoða stjórnarskránna nú um daga er að önnur stjórnarskrá hefði engu breytt um hrunið, enda hefði engum dottið í hug í miðjum ósköpunum að breyta henni eða kenna henni um. Þetta er býsna áhugavert viðhorf og endurspeglar þann [...]


Leshópur sem fjallar ítarlega um Rannsóknarskýrslu Alþingis hefur nú opnað bloggsíðu á mbl.is http://rannsoknarskyrslan.blog.is/blog/rannsoknarskyrslan/
Markmið leshópsins er að fjalla um skýrsluna og halda úti opnum umræðum sem gagnast öllum sem hafa áhuga á lýðræðisumbótum, auknu gegnsæi og siðberðisbótum í m.a. fjármálakerfinu sem og stjórnsýslunni. Með opinni umræðu um þessi málefni er von hópsins að leggja sitt af mörkum [...]

August 25, 2010 | Birtist í
Grasrótin,
Svipufréttir |
Lesa meira »